HomeÚti í heimiEvrópaJöfnuðu metin gegn Bayern

Jöfnuðu metin gegn Bayern

Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlin jöfnuðu metin í 1-1 í úrslitaeinvíginu um þýska meistaratitilinn með 86-79 sigri á Bayern München í dag.

Íslenski bakvörðurinn reyndist liði sínu dýrmætur á lokasprettinum þegar staðan var 76-74 fyrir Bayern; hann gaf fyrst stoðsendingu sem jafnaði leikinn og skoraði svo risakörfu í næstu sókn sem tryggði Alba Berlin forystu sem dugði allt til leiksloka.

Þar sem vinna þarf þrjá leiki til að hljóta meistaratitilinn er staða Alba Berlin vænleg, enda fara næstu tveir leikir fram á þeirra heimavelli í Berlín þar sem Martin fær kjörið tækifæri til að tryggja sér titilinn fyrir framan eigin stuðningsmenn.

Fréttir
- Auglýsing -