HomeNeðri deildir1. deild kvennaBlikar endurheimta leikmenn

Blikar endurheimta leikmenn

Kvennalið Breiðabliks situr ekki auðum höndum en mikil uppbygging á sér stað fyrir meistaraflokk kvenna, sem lýsir sér með samningum við blöndu af reynslu og framtíðar leikmönnum.

Ásamt því að semja við ungar og efnilegar stelpur á síðustu vikum hafa þær Elín Sóley Hrafnkelsdóttir, Eyrún Ósk Alfreðsdóttir og Þórdís Jóna Kristjánsdóttir nú snúið aftur heim í liðið. Hlín Sveinsdóttir, formaður kvennaráðs, fylgdi leikmönnunum til undirritunar sem munu styrkja hópinn jafnt innan sem utan vallar.

Þessar kröftugu aðgerðir leggja sterkan grunn að framtíð liðsins þar sem reynsluboltar munu styðja við bakið á yngri kynslóðinni. Markmiðið er að móta samheldinn og metnaðarfullan hóp sem endurspeglar öflugt yngri flokka starf og önnur kjarnagildi Breiðabliks á komandi árum.

Fréttir
- Auglýsing -