Semur til 2029

Arnaldur Grímsson hefur framlengt samning sinn við Ármann og mun leika með meistaraflokki félagsins næstu þrjú árin. Arnaldur, sem er að ganga inn í sitt þriðja tímabil í Laugardalnum, hefur fest sig rækilega í sessi hjá liðinu og er ætlað áframhaldandi stórt hlutverk í bláu treyjunni á komandi árum. Stjórn félagsins lýsir yfir mikilli ánægju og stolti með undirskriftina og binda forráðamenn miklar væntingar við að hann muni taka næstu skref á sínum ferli í Laugardalshöllinni.

Sjálfur segist Arnaldur vera virkilega spenntur fyrir framhaldinu og stefnir á að ná enn lengra með liðinu en á síðasta tímabili. Mikill hugur er í Ármenningum þessa dagana en samkvæmt heimildum er frekari tíðinda að vænta af leikmannamálum félagsins á næstunni.

Fréttir
- Auglýsing -