HomeBónus deildinBónus deild karlaFrá Austurríki í Skagafjörðinn

Frá Austurríki í Skagafjörðinn

Tindastóll hefur ráðið Ísak Mána Wíum til starfa en hann mun sinna fjölbreyttu hlutverki sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, verkefnastjóri deildarinnar og þjálfari tveggja elstu drengjaflokkanna.

Dagur Þór Baldvinsson, formaður deildarinnar, segir ráðninguna mikilvægt skref í að efla faglegt utanumhald og létta á sjálfboðaliðastarfi en Ísak mun flytja í Skagafjörð og hefja störf af fullum krafti um miðjan ágúst.

Þessi öflugi liðsstyrkur þykir mikið fagnaðarefni fyrir Skagfirðinga en lýst er yfir ríkri ánægju með komu Ísaks, enda er ljóst að kraftar hans og fagmennska munu nýtast afar vel í þeim fjölmörgu og stóru verkefnum sem fram undan eru hjá félaginu.

Fréttir
- Auglýsing -