Fjölnir hefur gengið frá samningi við Halldór Karl Þórsson um að hann haldi áfram sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá félaginu á komandi keppnistímabili.
Undir stjórn Halldórs náði liðið frábærum árangri á síðasta tímabili þar sem það fór alla leið í úrslit um sæti í Bónus-deildinni.
Mikil ánægja er með störf Halldórs samkvæmt tilkynningu Fjölnis og er stefnan sett á að byggja áfram á þeim öfluga grunni sem lagður hefur verið hjá félaginu. Með sterkan kjarna uppalinna leikmanna og skýra framtíðarsýn að vopni er stefna klúbbsins ótrauð á að taka næsta skref og berjast um sæti í efstu deild á næsta ári.




