HomeÚti í heimiEvrópaÍ úrvalsliðinu í Þýskalandi

Í úrvalsliðinu í Þýskalandi

Íslenski landsliðsbakvörðurinn Martin Hermannsson hefur verið heiðraður með sæti í fimm manna úrvalsliði undanúrslitanna í þýsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Val þetta kemur í kjölfar öflugrar frammistöðu Martins með Alba Berlín, en liðið innsiglaði sæti sitt í úrslitaeinvíginu með sigri í úrslitaleik gegn Bamberg. Martin er ekki eini leikmaður Berlínarliðsins í úrvalsliðinu því samherji hans, Michael Rataj, hlaut einnig þessa útnefningu.

Næst á dagskrá hjá Martin og félögum er sjálf úrslitarimman um þýska meistaratitilinn. Þar bíður þeirra verðugt verkefni þar sem mótherjarnir eru deildarmeistarar Bayern München.

Fréttir
- Auglýsing -