Elvar Már Friðriksson og samherjar hans í Tenerife fengu skell gegn spænska stórveldinu Barcelona, en fyrsti leikur liðanna í undanúrslitum deildarinnar endaði með 33 stiga sigri Barcelona, 100:67. Elvar Már lék í 14 mínútur í leiknum og tók eitt frákast ásamt því að gefa þrjár stoðsendingar, en honum tókst ekki að komast á blað yfir stigaskorara að þessu sinni.
Með þessum úrslitum hefur Barcelona tekið 1:0 forystu í rimmunni, en vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér sæti í úrslitum um sjálfan meistaratitilinn.




