Sá merki körfuboltaþjálfari Jenny Boucek kom við á Íslandi á ferð sinni um Evrópu, en hún á að baki farsælan feril sem þjálfari í NBA-deildinni.
Hún starfaði meðal annars um árabil hjá Dallas Mavericks og nú síðast hjá Indiana Pacers á síðasta tímabili. Tenging hennar við Ísland er sterk og litar sögu hennar, en hún spilaði sem erlendur leikmaður með Keflavík í kringum síðustu aldamót og hefur upp frá því haldið góðu sambandi við vini sína hér á landi.
Stopp hennar að þessu sinni tengist áframhaldandi körfuboltavegferð, en hún er á leið til Króatíu í einstaklingsþjálfun með leikmann Indiana Pacers sem glímdi við meiðsli á liðnu tímabili.

Í gær heimsótti Boucek NÚ skólann í Hafnarfirði á íþróttadegi skólans, en þá stóðu yfir kappleikir í Kaplakrika. Það var mikill heiður fyrir grunnskólann að fá svo reynslumikinn gest sem hélt tölu og svaraði fjölmörgum spurningum áhugasamra nemenda um lífið í NBA og leyndarmálið á bak við góð lið, sem hún segir felast í öflugri liðsheild þar sem allir vinna saman.
Nemendur spurðu spurninga í gríð og erg og vildi hún meina að bestu leikmennirnir sem hún hefur þjálfað – eins og Luka Doncic, Jalen Brunson og Tyrese Haliburton – einkennist af því að hafa engar áhyggjur af áliti annarra og bera sig ekki saman við aðra. Þeir spili óttalausir og einbeiti sér frekar að því að njóta augnabliksins og leggja allt í sölurnar. Sem dæmi nefndi hún að Jalen Brunson gæti átt slæman skotdag en léti það ekki á sig fá og setti svo niður sigurkörfuna í lokin.

Boucek hvatti unga fólkið dyggilega til að finna ástríðuna, fylgja hjartanu og reyna ávallt að bæta þau rými og lið sem þau ganga í til framtíðar. Auk skólaheimsóknarinnar kynnti hún sér körfuboltastarfið þar sem leikmenn voru við æfingar og leit við hjá FH þar sem hún pantaði sér tvær styrktartreyjur.
Eftir strangan en skemmtilegan dag var haldið í afslöppun þar sem gætt var á ljúffengum mat á Spírunni, skellt í sund á Álftanesi og gengið um Hellisgerði í Hafnarfirði þar sem skyggnst var eftir álfum. Heimsókninni lýkur þó ekki alveg strax því Jenny dvelur á landinu fram á laugardag, en þá heldur hún utan til Króatíu og áætlar að koma aftur við á Íslandi á leið sinni til baka.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá heimsókn Jenny










