Þór úr Þorlákshöfn hefur samið við serbneska framherjann Jovan Sljivancanin fyrir komandi tímabil. Sljivancanin er 26 ára, 196 cm á hæð og kemur með mikla reynslu úr evrópskum deildum, en síðast lék hann með BC Primorje 1945 þar sem hann skilaði að meðaltali 19,4 stigum og 6,8 fráköstum í leik.
Þjálfari Þórs segir Sljivancanin vera vinnusamans og fjölhæfan leikmann sem geti leyst margar stöður og skorað á fjölbreyttan hátt. Stjórn og þjálfarar lýsa yfir mikilli ánægju með komu hans og telja að keppnisskap hans og karakter muni passa fullkomlega inn í leikstíl og menningu liðsins.




