Leggur skóna á hilluna

Bríet Sif Hinriksdóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, en hún staðfesti þessi tímamót á samfélagsmiðlum fyrr í kvöld.

Hún lék síðast með uppeldisfélagi sínu, Keflavík, í Bónus deild kvenna, en á að baki glæsilegan feril í efstu deild og lék einnig fyrir íslenska landsliðið.

Á löngum og farsælum ferli, sem hófst í meistaraflokki árið 2011, lék hún með mörgum af sterkustu liðum landsins, þar á meðal Stjörnunni, Grindavík, Haukum og Njarðvík áður en hún sneri aftur til Keflavíkur. Hún skilur eftir sig stórt spor í íslenskum körfubolta og afrekslistinn hennar er langur, en hún varð meðal annars Íslandsmeistari með Keflavík árið 2013, þrefaldur bikarmeistari og þrefaldur meistari meistaranna, auk þess sem hún var valin í úrvalslið deildarinnar árið 2019.

Karfan óskar Bríeti velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur og til hamingju með glæsilegan feril.

Fréttir
- Auglýsing -