Njarðvík urðu á dögunum Íslandsmeistarar í 12. flokki kvenna eftir sigur á Val í úrslitaeinvíginu, en titillinn var í höfn eftir sigur í IceMar höllinni þar sem leiknum lauk 87-77 Njarðvík í vil eftir að liðið hafði einnig unnið fyrri leikinn á Hlíðarenda.
Hér fyrir ofan má sjá mynd af sigurliðinu, sem er þjálfað af Einari Árna Jóhannssyni og Bruno Richotti, en leikmaður liðsins, Hulda María Agnarsdóttir, var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna með 18 stig, 10 fráköst og 3 stoðsendingar að meðaltali í leikjunum.
Við óskum Njarðvík innilega til hamingju með þennan flotta árangur.
Mynd / KKÍ




