HomeFréttirStjarnan/KFG Íslandsmeistarar í 11. flokki drengja

Stjarnan/KFG Íslandsmeistarar í 11. flokki drengja

Stjarnan/KFG urðu á dögunum Íslandsmeistarar í 11. flokki drengja eftir sigur á KR/KV í úrslitaeinvíginu, en titillinn var í höfn eftir sigur á Meistaravöllum þar sem leiknum lauk 71-78 Stjörnunni/KFG í vil eftir að liðið hafði einnig unnið fyrri leikinn í Ásgarði.

Hér fyrir ofan má sjá mynd af sigurliðinu, sem er þjálfað af Ilija Omrcen og Boga Sigurbjörnssyni, en leikmaður liðsins, Steinar Rafn Rafnarsson, var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna með 21 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar að meðaltali í leikjunum.

Við óskum Stjörnunni/KFG innilega til hamingju með þennan flotta árangur.

Mynd / KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -