HomeÚti í heimiEvrópaÁ leiðinni í oddaleik gegn Bamberg

Á leiðinni í oddaleik gegn Bamberg

Landsliðsbakvörðurinn Martin Hermannsson og samherjar hans í Alba Berlín þurfa að mæta í oddaleik um sæti í úrslitaeinvígi þýsku efstu deildarinnar eftir tap í fjórða leik liðanna gegn Bamberg, 81:67. Martin átti heldur erfitt uppdráttar í sóknarleiknum í dag, en hann skilaði þremur stigum, fjórum stoðsendingum og tveimur fráköstum.

Oddaleikurinn fer fram á þriðjudaginn þar sem Martin og félagar fá lokatækifæri til að tryggja sér sæti í úrslitum gegn Bayern München.

Fréttir
- Auglýsing -