HomeFréttirLeita að þjálfurum

Leita að þjálfurum

Ármann leitar nú að þjálfurum til starfa fyrir komandi tímabil sem hefst í haust.

Um er að ræða körfuboltaþjálfun þar sem starfshlutfall ræðst af samkomulagi. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af þjálfun, búi yfir mikilli þekkingu og áhuga á íþróttinni, og er íþróttafræðimenntun eða önnur þjálfaramenntun sögð vera kostur.

Umsóknarfrestur um störfin er til og með 24. júní næstkomandi. Áhugasamir geta snúið sér til Odds Jóhannssonar, yfirþjálfara deildarinnar, eða sent póst á netföngin [email protected] og [email protected] til að fá nánari upplýsingar og leggja fram umsókn.

Fréttir
- Auglýsing -