HomeBónus deildinBónus deild kvennaSemur til tveggja ára við bikarmeistarana

Semur til tveggja ára við bikarmeistarana

Landsliðskonan Thelma Dís Ágústsdóttir hefur framlengt samning sinn við Keflavík um tvö ár. Hin 27 ára Thelma er uppalin hjá félaginu og hefur verið í lykilhlutverki undanfarin ár. Hún hefur leikið með Suðurnesjaliðinu allan sinn feril hér á landi, að undanskildum árunum 2018 til 2023 þegar hún stundaði nám í Bandaríkjunum.

Thelma Dís hefur unnið til fjölda titla með uppeldisfélagi sínu á farsælum ferli. Hún varð bæði Íslands- og bikarmeistari með Keflavík árið 2017 og endurtók þann leik með liðinu árið 2024. Á síðasta tímabili varð hún svo bikarmeistari með þeim.

Fréttir
- Auglýsing -