HomeÚti í heimiEvrópaÖflugur í fyrsta leik úrslitakeppninnar

Öflugur í fyrsta leik úrslitakeppninnar

Bilbao mátti þola 83:80 tap gegn Valencia á útivelli í kvöld í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni spænsku ACB deildarinnar.

Landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik fyrir gestina í Bilbao en hann lék í 25 mínútur. Á þeim tíma skoraði hann tólf stig, tók átta fráköst, stal tveimur boltum og varði tvö skot.

Einvígið er spilað þannig að vinna þarf tvo leiki til þess að komast áfram í næstu umferð úrslitakeppninnar. Bilbao er því með hnífinn á barkanum og þarf nauðsynlega á sigri að halda á heimavelli í næsta leik til þess að jafna metin og knýja fram oddaleik.

Fréttir
- Auglýsing -