ÍA hefur gert nýjan samning við Lucien Christofis um að leika með liðinu á komandi leiktíð.
Þetta verður hans sjötta tímabil með félaginu, en hann gekk til liðs við ÍA um mitt tímabil árið 2021. Forráðamenn félagsins lýsa yfir mikilli ánægju með áframhaldandi samstarf og segja hann hafa reynst liðinu gríðarlega vel, jafnt innan sem utan vallar.
Samhliða því að spila með meistaraflokki mun Lucien einnig koma að þjálfun í yngri flokkum félagsins á næsta tímabili. Mikil spenna ríkir á Akranesi fyrir komandi vetri og fagna Skagamenn því að halda þessum mikilvæga hlekk í sínum röðum.





