Logi Guðmundsson hefur gengið til liðs við Chaminade háskólann í Bandaríkjunum.
Logi er tæplega tveir metrar á hæð og er lýst sem fjölhæfum bakverði sem skilar góðu verki bæði í vörn og sókn. Hann á rætur að rekja til Kópavogs og hefur leikið upp alla yngri flokka og með meistaraflokki Breiðabliks.
Chaminade háskólinn er staðsettur í Honolulu á Hawaii í Bandaríkjunum. Körfuknattleikslið skólans keppir í NCAA Division II (2. deild bandaríska háskólakörfuboltans) og spilar innan PacWest-deildarinnar (Pacific West Conference).





