HomeNeðri deildir1. deild karlaOrðið á götunni: Hvert fara Styrmir Snær, Hilmar Smári og Dominykas Milka?

Orðið á götunni: Hvert fara Styrmir Snær, Hilmar Smári og Dominykas Milka?

Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.

  • Hamar og Þór munu samkvæmt orðinu á götunni vera á eftir leikmanni Skallagríms Jose Medina, en hann hefur áður leikið með báðum liðum.

  • Leikmaður íslenska landsliðsins og Zamora á Spáni Styrmir Snær Þrastarson er sagður með tvö stór tilboð á borðinu frá íslenskum liðum, Tindastóli og Álftanesi. Enn er þó talið líklegt að hann verði áfram á meginlandinu.

  • Sunnlendingurinn Haukur Davíðsson mun vera nálægt því að komast að samkomulagi við silfurlið Tindastóls í Bónus deildinni.

  • Sá orðrómur er í gangi að ÍR séu nálægt því að klára samning við miðherja Njarðvíkur Dominykas Milka. Fari svo hann skrifi ekki undir í Breiðholtinu eru bæði Ármann og Haukar sögð á eftir leikmanninum knáa.

  • Ármenningar eru einnig sagðir á eftir Viktori Steffensen úr Fjölni og Everage Lee Richardson sem síðast lék fyrir Hauka.

  • Talið er líklegt að Björn Ásgeir Ásgeirsson yfirgefi Hamar og gangi til liðs við Þór í Þorlákshöfn.

  • Samkvæmt orðrómi mun Valur hafa átt viðræður við leikmann Stjörnunnar Pablo Bertone um að ganga til liðs við félagið.

  • Þá eru nokkur lið sögð hafa verið í viðræðum við annan leikmann Stjörnunnar, Giannis Agravanis, en fari svo hann verði á Íslandi er hann sagður íhuga bæði Njarðvík og KR.

  • Hilmir Arnarson leikmaður Álftaness er sagður íhuga sig fyrir næsta vetur, en samkvæmt orðrómi er talið líklegt hann fylgi þjálfara sínum Hjalta Vilhjálmssyni til ÍA.

  • Hilmar Smári Henningsson er samkvæmt orðrómi að skoða sín mál þessa dagana. Ekki er endilega mikið talað um hann yfirgefi Stjörnuna, en fari svo er talið eins líklegt hann semji við Val eða Álftanes.

Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -