Björgvin Hafþór Ríkharðsson hefur gengið til liðs við Skallagrím eftir að hafa leikið með ÍR á liðnu tímabili.
Hann fer því á kunnuglegar slóðir kominn, en hann lék áður með Borgnesingum árin 2017 til 2019 og aftur tímabilið 2023–2024. Á ferli sínum hefur Björgvin einnig klæðst treyjum Grindavíkur, Tindastóls og Fjölnis.




