Hamar mun leika áfram í 1. deild karla á næsta tímabili samkvæmt tilkynningu frá félaginu.
Þrátt fyrir erfiðan endi á síðasta tímabili fékk liðið boð um að halda sæti sínu í deildinni og hefur það boð nú verið samþykkt.
Þjálfari, leikmenn og stjórn meistaraflokks lýsa yfir mikilli ánægju og spennu fyrir komandi tímabili í haust. Hópurinn horfir bjartsýnn fram á veginn og hlakkar til að sjá sem flesta stuðningsmenn mæta í stúkuna í Frystikistunni þegar línur fara að skýrast á nýju tímabili.




