Leikmaður Íslandsmeistara Grindavíkur DeAndre Kane, sem er búsettur á Íslandi, var handtekinn í gærkvöldi á alþjóðaflugvellinum í Pittsburgh eftir að hafa lent þar í flugi frá Íslandi. Kane, sem er 36 ára gamall, er samkvæmt heimildum Körfunnar grunaður um að skulda yfir 100.000 Bandaríkjadali í meðlag og hefur verið eftirlýstur frá árinu 2023 þegar hann mætti ekki fyrir dómstól.
Hann á að baki langan feril sem atvinnumaður erlendis og hefur spilað með ýmsum félögum frá árinu 2014, en hann vakti fyrst athygli sem skólastjarna í Pittsburgh á yngri árum. Undanfarið hefur hann haldið ferli sínum áfram hér á landi.
Lögregluyfirvöld vestanhafs og bandaríska utanríkisráðuneytið höfðu fengið veður af ferðalagi hans og biðu hans á flugvellinum. Kane var handtekinn um leið og hann steig af flugvélinni og situr nú í fangelsi þar sem hann bíður þess að koma fyrir dómara í fjölskyldumáli sínu.




