HomeBónus deildinBónus deild karlaÞakka fyrir sig og leita að eftirmanni

Þakka fyrir sig og leita að eftirmanni

Emil Barja hefur ákveðið að láta af störfum hjá Haukum og taka við karlaliði Stjörnunnar. Hann kveður Haukana eftir afar farsælt starf þar sem hann náði frábærum árangri með hina ýmsu flokka, en stærstu afrekin unnust á síðustu tveimur árum með kvennaliðið þar sem liðið varð deildarmeistari 2025 og 2026, Íslandsmeistari 2025 og vann til silfurverðlauna 2026. Í Haukum sjá menn á eftir mjög góðum þjálfara og persónu og er vinna við að leita að eftirmanni hans þegar hafin, sem ætti að skýrast fljótlega.

Í kveðju sinni segir Emil að virkilega gaman hafi verið að vinna með öllu fólkinu í kringum Hauka, jafnt leikmönnum, stjórnarfólki, sjálfboðaliðum sem stuðningsmönnum. Hann sé stoltur af því að hafa verið hluti af þessum frábæra klúbbi, þakkar fyrir sig og segist alltaf munu fylgjast með og óska Haukum alls hins besta áfram.

Fréttir
- Auglýsing -