HomeBónus deildinBónus deild karlaTímabilið gert upp: Jeremy Pargo og Daniel Dolenc á sitthvorum endanum í...

Tímabilið gert upp: Jeremy Pargo og Daniel Dolenc á sitthvorum endanum í Sjötta manninum

Út er kominn nýjasti þátturinn af hlaðvarpinu Sjötti maðurinn þar sem þeir Ögmundur Árni, Mikael Máni og Gunnar Bjartur mæta fullir eldmóðs til að gera upp liðinn vetur í körfuboltanum. Í þættinum rýna þeir í eftirminnilegustu augnablikin og þá miklu dramatík sem einkenndi tímabilið, auk þess sem þeir útnefna sína eigin verðlaunahafa og greina hvað stóð upp úr hjá einstökum liðum.

Sjónum er þó ekki eingöngu beint að fortíðinni því strákarnir kíkja líka í spákúluna og velta fyrir sér spennandi tímum framundan. Sumarið leggst vel í þá félaga og ræða þeir ítarlega hvernig leikmannamarkaðurinn gæti þróast á næstu mánuðum, hvaða breytingar séu í pípunum og hvaða lið séu líklegust til að styrkja sig fyrir átök næsta vetrar.

Eftirá að hyggja taldi Sjötti maðurinn samning Tindastóls við Daniel Dolenc ekki vera þeim til ábata á vellinum

Hér er yfirlit yfir þá leikmenn og þjálfara sem sérfræðingarnir völdu til misgóðra nafnbóta í verðlaunaafhendingu þáttarins:

  • Besti samningurinn: Jeremy Pargo / Grindavík
  • Versti samningurinn: Daniel Dolenc / Tindastóll
  • Besti ungi leikmaðurinn: Styrmir Jónasson / ÍA
  • Þjálfari ársins: Jóhann Þór Ólafsson / Grindavík
  • Hver kom mest á óvart: Igor Maric / Valur
Fréttir
- Auglýsing -