Semur við Stjörnuna

Stjarnan hefur ráðið Emil Barja sem aðalþjálfara meistaraflokks karla til næstu tveggja ára.

Emil kemur til Garðabæjarins frá Haukum þar sem hann þjálfaði síðast meistaraflokk kvenna og stýrði þeim meðal annars til Íslandsmeistaratignar í fyrra. Sem leikmaður á Emil farsælan feril að baki, en hann lék með meistaraflokki Hauka frá 2007 til 2023, fyrir utan tímabilið 2018–2019 þegar hann spilaði með KR og varð Íslandsmeistari.

Emil lýsir yfir mikilli spennu fyrir nýja starfinu og segir Stjörnuna hafa byggt upp öflugt starf og sterkan leikmannahóp sem verði gaman að vinna með í framhaldinu. Einar Karl Birgisson, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar, lýsir sömuleiðis yfir mikilli ánægju með ráðninguna. Hann nefnir að Emil hafi náð áhugaverðum árangri á þjálfaraferlinum og að deildin bindi miklar vonir við samstarfið enda sé framtíðin björt.

Samhliða ráðningu Emils var gengið frá samningi við Inga Þór Steinþórsson sem mun halda áfram sem aðstoðarþjálfari liðsins. Í tilkynningunni kemur fram að Ingi Þór þurfi ekki að kynna fyrir Stjörnufólki og ríki mikil ánægja með að halda honum innan þjálfarateymisins fyrir komandi tímabil.

Fréttir
- Auglýsing -