Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Sjötti maðurinn er nú kominn í loftið. Í þættinum setjast þeir Ögmundur Árni, Mikael Máni og Gunnar Bjartur niður og gera upp nýafstaðið tímabil í körfuboltanum af sinni alkunnu snilld.
Farið er yfir helstu hápunkta og dramatíkina sem einkenndi veturinn, auk þess sem strákarnir veita sín eigin verðlaun fyrir tímabilið og rýna í það sem stóð upp úr hjá liðunum.
Auk þess að horfa til baka hleypa þeir hlustendum í ferðalag fram í tímann og spá í spilin fyrir næsta vetur. Mikil eftirvænting ríkir fyrir sumrinu og ræða þeir ítarlega hvernig leikmannamarkaðurinn muni þróast á næstu mánuðum, hvaða hræringar séu líklegar og hvaða lið gætu styrkt sig mest fyrir komandi átök.
Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils




