Martin Hermannsson fór á kostum fyrir Alba Berlín þegar liðið vann Rasta Vechta í oddaleik um sæti í undanúrslitum í Þýskalandi. Íslenski landsliðsmaðurinn skoraði 19 stig og gaf 10 stoðsendingar á þeim 27 mínútum sem hann spilaði.
Næsta verkefni Berlínarliðsins er rimma við Bamberg í undanúrslitunum. Alba endaði í öðru sæti deildarinnar á meðan andstæðingarnir í Bamberg luku keppni í því þriðja.




