HomeBónus deildinBónus deild karlaÞessir 5 leikmenn fá líklega ekki samning í Bónus deildinni á næstu...

Þessir 5 leikmenn fá líklega ekki samning í Bónus deildinni á næstu leiktíð

Nýlokið tímabil í Bónus deild karla var gert upp í hlaðvarpsþættinum Run and Gun með Máté Dalmay í gær, þar sem farið var yfir helstu vendingar vetrarins í beinni útsendingu. Í þættinum var meðal annars kynntur áhugaverður listi yfir þá erlendu atvinnumenn sem þykir ljóst að muni ekki fá samning hjá neinu liði í deildinni á næstu leiktíð. Það var fjölmiðlamaðurinn Tómas Steindórsson sem tók listann saman sérstaklega fyrir útsendinguna.

Heitar umræður sköpuðust um leikmennina á listanum og frammistöðu þeirra á tímabilinu, en nánar var rýnt í málin í nýjasta þætti Run and Gun sem nálgast má á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Listann yfir þá erlendu leikmenn sem eiga ekki afturkvæmt í Bónus deildina að mati Tómasar má sjá hér fyrir neðan.

Hérna er Run and Gun á Spotify

Fréttir
- Auglýsing -