HomeBónus deildinBónus deild karlaAukasendingin: Nýjasta orðið á götunni og verðlaunahafar tímabilsins opinberaðir

Aukasendingin: Nýjasta orðið á götunni og verðlaunahafar tímabilsins opinberaðir

Aukasendingin fékk góða gesti í hlaðvarpið þegar Strikerinn og Jónfrí mættu til að ræða málin. Í þættinum var farið yfir allt það helsta og rýnt í nýjasta slúðrið um leikmanna- og þjálfarabreytingar í Bónus og fyrstu deildunum á Íslandi.

Auk þess að kryfja félagaskiptamarkaðinn fóru gestir og stjórnendur í árlega verðlaunaafhendingu þáttarins, þar sem meðal annars voru veitt verðlaun fyrir besta formanninn, besta leikmanninn, versta erlenda leikmanninn og senu ársins, ásamt því að verðlauna bestu stuðningsmennina, fjölmiðlamann ársins og hlaðvarp ársins. Áhugasamir geta nálgast þáttinn á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

Fréttir
- Auglýsing -