HomeÚti í heimiEvrópaTíu stig í frumraun sinni í ACB

Tíu stig í frumraun sinni í ACB

Elvar Már Friðriksson byrjaði vel með nýja liðinu sínu, La Laguna Tenerife, eftir að hafa skipt yfir frá pólska félaginu Anwil Wloclawek á dögunum.

Elvar skilaði tíu stigum og tveimur fráköstum þegar Tenerife lagði Granada, en með því fagnaði liðið sínum fyrsta sigri eftir sjö leikja taphrinu.

Sigurinn kemur Tenerife í ágæta stöðu í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni spænsku ACB-deildarinnar, þótt sætið sé ekki endanlega tryggt. Liðið getur tryggt sig inn með því að vinna tvo síðustu leiki sína, en annars þarf það að treysta á hagstæð úrslit úr öðrum leikjum. Lokaleikur liðsins fyrir úrslitakeppnina fer fram föstudaginn 29. maí gegn Tryggva Snæ Hlinasyni og Bilbao Basket.

Fréttir
- Auglýsing -