HomeNeðri deildir1. deild karlaOrðið á götunni: Semja Styrmir og Hilmar Smári við Álftanes?

Orðið á götunni: Semja Styrmir og Hilmar Smári við Álftanes?

Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.

  • Samkvæmt orðinu á götunni munu Stjarnan og Hörður Axel Vilhjálmsson hafa átt samtal um að hann komi til starfa hjá félaginu.
  • Talið er líklegt að Hilmir Arnarson muni yfirgefa Álftanes í sumar, en líklegt er talið hann muni setjast niður með bæði Ármanni og Fjölni áður en hann tekur ákvörðun.
  • Baldur Þór Ragnarsson nýráðinn þjálfari Álftaness er sagður vilja ná í einhverja sterka leikmenn fyrir komandi tímabil. Samkvæmt orðinu á götunni eru Hilmar Smári Henningsson úr Stjörnunni og sveitungur hans Styrmir Snær Þrastarson báðir á óskalistanum.
  • Sigvaldi Eggertsson úr Fjölni og David Okeke úr Álftanesi eru báðir orðaðir við Þór Þorlákshöfn.
  • Anna Lára Vignisdóttir leikmaður Keflavíkur er sögð hafa átt í viðræðum við nokkur lið, líklegast er þó talið hún muni ganga til liðs við Grindavík.
  • Grindavík eru einnig sagðar með augastað á ungstirni Hanars/Þórs Jóhönnu Ýr Ágústsdóttur
  • Talið er líklegt að Björn Ásgeir Ásgeirsson úr Hamri muni söðla um og ganga til liðs við Fjölni fyrir komandi leiktíð.
  • Samkvæmt orðinu á götunni hefur Fjölnir einnig reynt að fá Róbert Sigurðarson til að taka fram skóna á nýjan leik.
  • Þjálfari Fjölnis Baldur Már Stefánsson er ekki talinn líklegur til að halda áfram í Grafarvoginum. Mögulegir arftakar hans þar hafa verið nefndir Hjalti Vilhjálmsson og Óskar Þorsteinsson.
  • Mikael Máni Hrafnsson er sagður eftur á óskalista ÍA yfir þjáfara fyrir komandi leiktíð.
  • Talið er frekar líklegt að Ilja Omrcen aðstoðarþjálfari Stjörnunnar taki við Þór Þorlákshöfn.
  • Sara Rún Hinriksdóttir er enn talin líkleg til þess að yfirgefa Keflavík í sumar. Líklegastur áfangastaða er talinn Stjarnan, en fari svo þær samningsviðræður renni í sandinn hefur Valur verið nefndur sem áfangastaður.
  • Leikmaður Íslandsmeistara Grindavíkur Valur Orri Valsson liggur samkvæmt orðinu á götunni undir feld þessa dagana þar sem hann íhugar hvort hann segi þetta gott og leggi skóna á hilluna.

Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -