Keflavík hefur gert tveggja ára samning við Arnór Daða Jónsson um að taka við sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna.
Arnór er mörgum hnútum kunnur innan félagsins, en hann er uppalinn Keflvíkingur sem hefur þjálfað yngri flokka félagsins til fjölda ára og gegndi starfi aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna á nýafstöðnu tímabili.
Hjá stjórn deildarinnar ríkir mikil ánægja og eftirvænting með ráðninguna, en lýst er yfir ríkri spennu fyrir áframhaldandi samstarfi við þennan unga og metnaðarfulla þjálfara.




