Lokaumferð Íslandsmóts drengja 11 ára og yngri í körfuknattleik fór fram á Akureyri um síðustu helgi. Álftanes var í kjörstöðu til að verja Íslandsmeistaratitil sinn frá því í fyrra þegar þeir urðu meistarar í 10 ára flokki. Þar sem liðið hafði farið með sigur af hólmi í síðustu tveimur umferðum mótsins þurfti það aðeins að hafna í einu af fjórum efstu sætunum um helgina til að tryggja sér titilinn.
Sá árangur náðist eftir vaska framgöngu þar sem strákarnir unnu þrjá af fimm leikjum sínum á mótinu og enduðu í öðru sæti umferðarinnar. Þar með endurtóku þeir leikinn frá því í fyrra og fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í flokki 11 ára drengja eftir harða baráttu. Í næstu sætum á eftir meisturunum höfnuðu Njarðvík og KR, sem urðu í öðru og þriðja sæti.
Hér fyrir ofan má sjá mynd af nýkrýndum Íslandsmeisturunum.




