HomeBónus deildinBónus deild karlaNýkrýndur þjálfari Íslandsmeistara sektaður

Nýkrýndur þjálfari Íslandsmeistara sektaður

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í fjórum agamálum sem henni höfðu borist til úrlausnar á tímabilinu. Körfuknattleiksþjálfararnir Jóhann Þór Ólafsson hjá Grindavík, Emil Barja hjá Haukum, Nebojsa Knezevic hjá Sindra og Hrafn Kristjánsson hjá Breiðabliki hafa allir verið úrskurðaðir í sektir.

Samkvæmt ákvæðum í reglugerð um aga- og úrskurðarmál þurfa þjálfararnir fjórir hver um sig að greiða 50 þúsund króna sekt. Ástæða úrskurðarins er sú að hver og einn þeirra hefur hlotið átta tæknivillur á yfirstandandi tímabili.

Fréttir
- Auglýsing -