Njarðvík tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld með sigri á Haukum í IceMar höllinni, 95-70.
Með þessum sigri lauk úrslitaeinvíginu með 3-1 sigri Njarðvíkur, sem steypti þar með ríkjandi Íslandsmeisturum Hauka af stóli eftir harða baráttu.
Þetta er þriðji Íslandsmeistaratitillinn í sögu kvennaliðs Njarðvíkur og fögnuðu leikmenn og stuðningsmenn gríðarlega í leikslok. Haukar, sem fögnuðu titlinum á síðasta tímabili, þurftu að játa sig sigraða gegn sterku liði Njarðvíkur sem sýndi mikið öryggi á lokasprettinum.
Frekari umfjöllun, viðtöl og myndir væntanlegar



