Fjórði leikurinn í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna í körfuknattleik fer fram í IceMar-höllinni í Njarðvík í kvöld klukkan 20:15.
Fyrir leikinn er staðan í einvíginu 2-1 Njarðvík í vil, sem þýðir að liðið getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á heimavelli.
Gestirnir úr Hafnarfirði, Haukar, mæta til leiks með bakið upp við vegg og verða að sækja sigur til þess að knýja fram fimmta og úrslitaleik í einvíginu. Viðureignir liðanna það sem af er úrslitakeppninni hafa verið spennandi og ljóst er að bæði lið munu leggja allt í sölurnar í kvöld, hvort sem það verður til þess að Njarðvík fagni titli á heimavelli eða að Haukar jafni metin og tryggi sér oddaleik í Ólafssal.
Leikur kvöldsins
Bónus deild kvenna – Úrslit
Njarðvík Haukar – kl. 20:15



