UMFG og Grindvíkingar heiðruðu Breiðablik í gær, rétt fyrir þriðja leik úrslitaeinvígisins gegn Tindastóli í HS orku höllinni og sýndu þeim mikinn þakklætisvott. Blikar opnuðu Smárann og tóku á móti Grindvíkingum þegar þeir stóðu frammi fyrir húsnæðisleysi eftir hamfarirnar í Grindavík, og sáu til þess að þeim liði eins og heima hjá sér á erfiðum tímum.
Sérstakar þakkir voru færðar Heimi Jónssyni formanni Blika, sem stóð þétt við bakið á Grindvíkingum alla leið. Verður Grindavík Heimi og öllum Blikum ævinlega þakklátir fyrir ómetanlegan stuðning, hlýju og hina kunnuglegu liðlegheitakveðju: „Já já, við reddum þessu.“



