Í kvöld fer fram þriðji leikurinn í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna þar sem Haukar taka á móti Njarðvík á Ásvöllum klukkan 19:30. Staðan í einvíginu er 2-0 fyrir Njarðvík, sem þýðir að liðið er aðeins einum sigri frá því að hampa Íslandsmeistaratitlinum.
Verkefnið er ærið fyrir ríkjandi meistara í Haukum sem þurfa sigur á heimavelli sínum til að halda voninni á lofti og knýja fram fjórða leik. Njarðvíkingar mæta hins vegar fullir sjálfstrausts á Ásvelli og ætla sér eflaust að ljúka einvíginu strax í kvöld og fagna titlinum á útivelli.
Leikur kvöldsins
Bónus deild kvenna – Úrslit
Haukar Njarðvík – kl. 19:30




