HomeBónus deildinBónus deild karlaGrindavík einum sigri frá Íslandsmeistaratitli

Grindavík einum sigri frá Íslandsmeistaratitli

Tindastóll tók á móti Grindavík í öðrum leik liðanna í úrslitum Bónus deildar karla í körfuknattleik í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Grindavík leiddi einvígið 1-0 eftir sigur í fyrsta leik í Grindavík.

Leikurinn fór jafnt af stað en heimamenn voru þó aðeins á undan og náðu 7 stiga forystu þegar 3 mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta. Stólar voru þó ekki að hitta vel frekar en í fyrsta leiknum en börðust betur og voru að komast meira á körfuna en í fyrsta leiknum. Stólar leiddu 27-22 eftir fyrsta leikhluta. Grindavík hóf annan leikhluta með 10-0 áhlaupi en Stólar náðu að svara með sjaldséðum þrist frá Geks og komust aftur yfir. Stólar leiddu 42-37 þegar skammt var til hálfleiks en Ragnar Örn minnkaði muninn með góðum þrist.

Tölfræði leiksins

Grindavík hóf seinni hálfleik af krafti með körfu frá Semple og svo komu þrír þristar í röð frá Pargo sem hafði ekki hitt vel fram að þessu í einvíginu. Stólar voru slegnir útaf laginu en komu þó til baka fyrir leikhlutaskiptin og einungis munaði 2 stigum fyrir lokaátökin 59-61. Fjórði leikhlutinn var stál í stál en tveir þristar frá Unnsteini og Semple komu gestunum í 71-79 áður en Basile svaraði með þrist og tæpar 3 mínútur voru eftir. Basile jafnaði svo leikinn upp á sitt einsdæmi í 79-79 en gestirnir reyndust sterkari á lokasprettinum og þá ekki síst Unnsteinn sem setti 5 stig í röð áður en Pargo kláraði leikinn á vítalínunni.

Staðan 2-0 og Stólar eiga á hættu að vera sópað 

Drungilas (19 stig og 10 fráköst) og Basile (18 stig og 10 fráköst) voru bestir heimamanna en Kane var frábær í jöfnu liði gestanna, ekki síst varnarlega.

Viðtöl :

Fréttir
- Auglýsing -