Njarðvík vann mikilvægan sigur á Haukum í kvöld, 75–70, í öðrum leik úrslitaeinvígis Bónus deildar kvenna.
Leikurinn var spennandi fram á lokasekúndurnar en Njarðvíkingar sýndu mikinn styrk í fjórða leikhluta og tókst að landa fimm stiga sigri fyrir framan tæplega þúsund áhorfendur í IceMar-höllinni.
Karfan spjallaði við Brittany Dinkins leikmann Njarðvíkur eftir leik í IceMar höllinni.




