Njarðvík er komið í 2-0 forystu gegn Haukum í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í Bónusdeild kvenna. Njarðvík hafði sigur í háspennuleik í IceMar-Höllinni í kvöld 75-70. Dinkins fór á kostum með 30 stiga leik en Tinna, Masa og Freeman voru allar með 16 stig í liði Hauka.
Njarðvík getur því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn fimmtudaginn 14. maí næstkomandi þegar liðin mætast í sinni þriðju viðureign í Ólafssal.

Hrokkið í gang
Haukar fóru betur af stað í kvöld, Tinna Guðrún hrökk í gang og var að finna sig vel með tvo þrista snemma og alls 12 stig í fyrsta leikhluta. Dani Rodriguez setti fyrsta Njarðvíkurþristinn eftir liðlega sex mínútna leik og minnkaði muninn í 11-17. Haukar voru þó broddmeiri fyrstu tíu mínúturna rog leiddu 22-27 að þeim loknum. Catherine Masa kom sterk af Haukabekknum og skellti niður fimm stigum og bakaði Sofiu Roma vandræði í Njarðvíkurteignum.

Sett í gír
Amandine Justine skilaði stigalausum fyrri hálfleik því eftir þrjár mínútur í öðrum leikhluta fékk hún sína þriðju villu og sást ekki meir þennan leikhluta. Njarðvíkingar settu í gír og náðu að komast yfir 38-35 þegar fimm mínútur voru til hálfleik. Haukar bitu þó frá sér og Masa hélt áfram að gera glundroða í teignum með 12 stig í leikhléi eins og Tinna Guðrún. Staðan 42-42 í hálfleik og Brit komin með 19 stig hjá Njarðvík og Dani 11.

Háa drifið
Um leið og síðari hállfleikur hófst var sett í háa drifið, Hulda María skellti niður tveimur góðum þristum og kom Njarðvík í 50-49. Í kvöld voru Njarðvíkingar ekki jafn mikið að finna Hersler í teignum en þær Masa og Freeman í Haukaliðinu höfðu góðar gætur á þeirri sænsku. Amandine fékk sína fjórðu villu með rúmar tvær eftir af þriðja og þeim fúlu fréttum fyrir Hauka fylgdi Krista Gló eftir með þrist og kom Njarðvík í 59-56. Heimakonur leiddu svo 62-58 fyrir fjórða leikhluta þar sem Brit var komin með 24 stig hjá Njarðvík og Tinna Guðrún 16 hjá Haukum.

Heldur vélin þetta út?
Fjórði leikhluti var nákvæmlega eins og allur leikurinn, jafnt á öllum tölum en það hægðist nokkuð á stigaskorinu og spennan var óbærileg, spurning hvort head-pakkningin héldi hjá áhorfendum.
Þóra setti risastóran þrist fyrir Hauka og kom þeim í 64-65 með rúmar sex mínútur til leiksloka og næstum fjórum mínútum síðar kom Dani Njarðvík í 68-67 með „afturstigs skoti“ um leið og skotklukkan gall. Njarðvík reyndust síðan þrautgóðar á lokasprettinum, komust í 74-70 og Haukar áttu boltann með 13 sekúndur eftir þegar Freeman keyrði upp endanlínuna en steig útaf og eftirleikurinn þá auðveldur fyrir Njarðvík sem leiðir nú einvígið 0-2!
Brittany Dinkins fékk 4 sekúndur í hvíld í kvöld! Skoraði 30 stig, tók 9 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Næst henni var Dani Rodriguez með 15 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar. Hjá Haukum voru þrjár jafnar með 16 stig en það voru þær Tinna Guðrún, Masa og Freeman.




