Njarðvík vann mikilvægan sigur á Haukum í kvöld, 75–70, í öðrum leik úrslitaeinvígis Bónus deildar kvenna. Leikurinn var spennandi fram á lokasekúndurnar en Njarðvíkingar sýndu mikinn styrk í fjórða leikhluta og tókst að landa fimm stiga sigri fyrir framan tæplega þúsund áhorfendur í IceMar-höllinni.
Með þessum sigri er Njarðvík komið í kjörstöðu og leiðir einvígið 2–0. Liðið getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í næsta leik sem fram fer í Hafnarfirði næstkomandi fimmtudag. Haukar standa nú frammi fyrir því erfiða verkefni að þurfa að vinna þrjá leiki í röð til að snúa seríunni sér í hag.




