Keflavík hefur framlengt samning sinn við Jaka Brodnik til næstu tveggja ára. Jaka hefur leikið með félaginu síðustu fimm tímabil og er einn af lykilmönnum liðsins.
Hjá félaginu ríkir mikil ánægja með að halda þessum mikilvæga leikmanni innan sinna raða. Hann er sagður gegna stóru hlutverki bæði inni á vellinum og sem hluti af samfélaginu í Keflavík.




