Njarðvík tók forystuna í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna með 80-92 sigri á Haukum á Ásvöllum.
Gestirnir lögðu grunninn að sigrinum með sterkum öðrum leikhluta þar sem þeir skoruðu 28 stig gegn aðeins 14 stigum Hauka. Þrátt fyrir öflugt áhlaup Hauka í þriðja leikhluta tókst Njarðvík að tryggja sigurinn í þeim síðasta og leiða nú einvígið 1-0, en vinna þarf þrjá leiki til að vinna Íslandsmeistaratitilinn.
Karfan spjallaði við Einar Árna Jóhannsson þjálfara Njarðvíkur eftir leik í Hafnarfirði.




