HomeNeðri deildir1. deild karlaSemur til þriggja ára

Semur til þriggja ára

Körfuknattleiksdeild ÍA hefur tryggt sér krafta Gojko Sudzum til næstu þriggja ára, en hann skrifaði nýverið undir samning þess efnis við Akurnesinga. Þessi tíðindi þykja mikið fagnaðarefni fyrir félagið, sérstaklega í ljósi þess að liðið féll úr efstu deild, Bónus deildinni, á nýafstöðnu tímabili.

Sudzum hefur verið lykilmaður í liði ÍA og er ljóst að stjórn deildarinnar ætlar sér beina leið aftur upp á meðal þeirra bestu.

Fréttir
- Auglýsing -