Elías Pálsson hefur skrifað undir samning við skólalið University of Detroit Mercy í bandaríska háskólaboltanum (NCAA D1). Elías, sem kemur frá Njarðvík, færir sig yfir til Detroit frá Augusta-háskólanum þar sem hann hefur leikið undanfarin misseri.
Elías er öflugur bakvörður sem hefur sýnt flotta takta á vellinum, en hjá Detroit Mercy mun hann leika undir merkjum Titans. Skólinn er staðsettur í Detroit, Michigan, og leikur í Horizon League deildinni.




