HomeNeðri deildir1. deild karlaNýr maður í brúnna hjá Hamri

Nýr maður í brúnna hjá Hamri

Hamar hefur ráðið Hallgrím Brynjólfsson sem þjálfara meistaraflokks karla til næstu tveggja ára.

Hallgrímur er öllum hnútum kunugur í Hveragerði en hann starfaði sem yfirþjálfari yngri flokka félagsins á liðnum vetri, auk þess sem hann stýrði meistaraflokki kvenna hjá Hamri/Þór í gegnum mikilvæga baráttu um áframhaldandi sæti í efstu deild. Stjórn deildarinnar lýsir yfir mikilli ánægju með ráðninguna og ríkir mikil tilhlökkun innan félagsins að hefja uppbyggingarstarfið undir hans stjórn.

Liðið stendur á ákveðnum tímamótum eftir krefjandi tímabil en nýráðinn þjálfari og stjórn horfa full bjartsýni til framtíðar með það skýra markmið að koma liðinu aftur á meðal þeirra bestu. Hallgrímur segist spenntur fyrir verkefninu og að undirbúningur sé þegar hafinn enda sé stefnan sett rakleiðis upp á við. Er því ljóst að mikill hugur er í Hamarsmönnum sem ætla sér stóra hluti á komandi misserum með heimamanninn við stjórnvölinn.

Fréttir
- Auglýsing -