HomeNeðri deildir1. deild karlaHver tekur forystuna í kvöld?

Hver tekur forystuna í kvöld?

Í kvöld fer fram gríðarlega mikilvægur þriðji leikur í úrslitaeinvígi fyrstu deildar karla þegar Sindri tekur á móti Breiðabliki í Ice Lagoon höllinni á Hornafirði. Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1, en hingað til hafa bæði lið nýtt heimavallarréttinn sinn til hins ýtrasta og varið sín vígi. Þar sem vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í Bónus deildinni á næsta tímabili, er ljóst að sigurvegari kvöldsins nær undirtökunum og kemst í kjörstöðu fyrir framhaldið.

Búist er við rafmagnaðri stemningu í höllinni klukkan 19:15, enda mikið í húfi fyrir bæði lið og stuðningsmenn þeirra. Sindramenn munu treysta á kraftinn úr stúkunni heima fyrir til að knýja fram sigur, á meðan Blikar mæta dýrvitlausir í þeim tilgangi að stela dýrmætum útisigri og snúa einvíginu sér í hag.

Leikur dagsins

Fyrsta deild karla – Úrslit

Sindri Breiðablik – kl. 19:15

Fréttir
- Auglýsing -