HomeNeðri deildir1. deild karlaLeitað að nýjum þjálfara á Skagann

Leitað að nýjum þjálfara á Skagann

Óskar Þór Þorsteinsson mun ekki halda áfram sem þjálfari meistaraflokks karla hjá ÍA í körfuknattleik, en þetta staðfesti Birkir Guðjónsson, formaður félagsins, í samtali við Skagafréttir. Óskar kveður félagið að fullu þar sem hann mun heldur ekki stýra yngri flokkum ÍA líkt og hann hefur gert undanfarin tvö ár. Undir hans stjórn skrifaði liðið nýjan kafla í sögu félagsins þegar það tryggði sér sigur í 1. deild vorið 2025 og vann sér sæti í efstu deild karla eftir aldarfjórðungs bið.

Dvölin í Bónusdeildinni varð hins vegar stutt í þetta sinn þar sem ÍA endaði á botni deildarinnar í vetur og féll aftur niður um deild. Óskar Þór, sem kom til Akraness eftir farsælt starf hjá Þór á Akureyri, lætur nú af störfum á sama tíma og stjórn körfuknattleiksdeildarinnar hefur hafið leit að eftirmanni hans. Að sögn Birkis formanns er félagið þegar farið að kanna markaðinn og er búist við því að nýjar línur varðandi þjálfaramál skýrist á næstu vikum.

Fréttir
- Auglýsing -