Grindavík tryggði sér sæti í úrslitum Bónus deildar karla með sigri á Val í óspennandi oddaleik í kvöld.
Fyrr í kvöld hafði Tindastóll betur gegn Stjörnunni í sínum oddaleik, en báðum undanúrslitaviðureignunum lauk með 3-2 sigri í leikjum talið.
Það eru því Tindastóll og Grindavík sem mætast í einvíginu um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn í ár. Körfuboltaáhugafólk þarf ekki að bíða lengi eftir spennunni því fyrsti leikur úrslitanna fer fram strax næstu helgi.




